Psalms 72

1Eftir Salómon. Guð, sel konungi í hendur dóma þína og konungssyni réttlæti þitt, 2að hann dæmi lýð þinn með réttvísi og þína þjáðu með sanngirni. 3Fjöllin beri lýðnum frið og hálsarnir réttlæti. 4Hann láti hina þjáðu meðal lýðsins ná rétti sínum, hann hjálpi hinum snauðu og kremji kúgarann. 5Þá mun hann lifa meðan sólin skín og tunglið ber birtu, frá kyni til kyns. 6Hann mun falla sem regn á slægjuland, sem regnskúrir, er vökva landið. 7Um hans daga skal réttlætið blómgast og gnóttir friðar, uns tunglið er eigi framar til. 8Og hann skal ríkja frá hafi til hafs, frá Fljótinu til endimarka jarðar. 9Fjandmenn hans skulu beygja kné fyrir honum og óvinir hans sleikja duftið. 10Konungarnir frá Tarsis og eylöndunum skulu koma með gjafir, konungarnir frá Saba og Seba skulu færa skatt. 11Og allir konungar skulu lúta honum, allar þjóðir þjóna honum. 12Hann bjargar hinum snauða, er hrópar á hjálp, og hinum þjáða, er enginn liðsinnir. 13Hann aumkast yfir bágstadda og snauða, og fátækum hjálpar hann. 14Frá ofbeldi og ofríki leysir hann þá, og blóð þeirra er dýrmætt í augum hans. 15Hann mun lifa og menn munu gefa honum Saba-gull, menn munu sífellt biðja fyrir honum, blessa hann liðlangan daginn. 16Gnóttir korns munu vera í landinu, á fjallatindunum, í gróðri þess mun þjóta eins og í Líbanon, og menn skulu spretta upp í borgunum eins og gras úr jörðu. 17Nafn hans mun vara að eilífu, meðan sólin skín mun nafn hans gróa. Og með honum skulu allar ættkvíslir jarðarinnar óska sér blessunar, allar þjóðir munu hann sælan segja. 18Lofaður sé Drottinn, Guð, Ísraels Guð, sem einn gjörir furðuverk, 19og lofað sé hans dýrlega nafn um eilífð, og öll jörðin fyllist dýrð hans. Amen, amen. 20Bænir Davíðs Ísaísonar eru á enda.
Copyright information for Icelandic